Talmeinafræðingar á Íslandi eru duglegir að sækja ráðstefnur erlendis til að afla sér aukinnar þekkingar. Ritnefndin tók nokkra talmeinafræðinga á tal og fékk að heyra frá ævintýrum þeirra utan landsteinanna.

 

Karabísku drottningarnar Jane Petra, Álfhildur, Halla og Hildur Edda

Í apríl 2024 flugu fjórir óþreyjufullir talmeinafræðingar á vit ævintýra í karabíska hafinu. Flogið var til Ft. Lauderdale í Flórída þaðan sem við sigldum með Royal Caribbean á skemmtiferðaskipi þar sem ætlunin var að blanda saman spennandi upplifun, skemmtun og fræðslu á ráðstefnunni ,Making waves á vegum Bjorem Speech. Þetta var í fyrsta sinn sem boðið var upp á þennan möguleika sem brýtur upp hið hefðbundna ráðstefnuform. Mikil tilhlökkun var í íslenska hópnum, enda hafði undirbúningur hafist rúmu ári fyrr.

Á ráðstefnunni voru framúrskarandi fyrirlesarar sem allir eru vel þekktir og eru framarlega á sínu sviði innan talmeinafræðinnar s.s. Jennie Bjorem, Cari Ebert, Amy Graham og Rebecca Reinkin. 

Hluti hópsins með Rebeccu Reinkin sem heldur úti instagram reikningnum Adventures in speech pathology

Erindi allra þeirra sem fluttu fyrirlestra voru áhugaverð og fjölbreytt og margt sem við getum nýtt okkur í starfi. Það sem okkur þótti standa upp úr var umfjöllun um framburðarvinnu og þá helst aðferðir eins og lágmarkspör (e. minimal pairs) og lotuaðferðin (e. cycles approach). Umfjöllun Cari Ebert um einhverfu var einnig mjög áhugaverð en hún fjallar um aðferðir sem ýta undir og samþykkja fjölbreytileika einhverfra (e. neurodiversity affirming).

Fyrirkomulagið í siglingunni var á þann veg að fyrirlestrar hófust eldsnemma á morgnana, eða kl. 7:00, svo lagðist skipið að bryggju um miðjan dag og þá var frjáls tími til að fara í land eða slappa af og njóta alls þess sem stórt skemmtiferðaskip hefur upp á að bjóða. Fyrirlestrar héldu svo áfram seinnipartinn þegar skipið lagði aftur úr höfn.

Við kusum að fara í land í Nassau á Bahamas þar sem við höfðum bókað okkur skipulagða ferð um eyjuna með stórskemmtilegum fararstjóra að nafni Fonzie sem keyrði um eyjuna með okkur á risastórum golfbíl. Nassau er höfuðborg Bahama eyja og á sér áhugaverða sögu. Fonzie var eldhress og fræddi okkur um Bahamas eyjarnar sem eru hvorki meira né minna en 700 talsins. Á Bahama eyjum eru engir skattar svo misskipting er gríðarleg og keyrði Fonzie með okkur um eyjuna og sýndi okkur merki þess. Við fengum að bragða á gómsætum hefðbundnum mat og drykkjum frá Bahamas. Þátttakendur voru hvattir til að koma með bækur til að gefa fátækum börnum á Bahamas sem við og gerðum. 

Daginn eftir lagði skipið við bryggju á eyju sem heitir Cococay og var yfirskrift dagsins Perfect Day sem reyndist svo sannarlega réttnefni. Cococay er pínulítil paradísareyja þar sem enginn á fasta búsetu en starfsmenn dvelja þar á meðan þeir vinna. Þar er risastór rennibrautagarður, hægt að fara í loftbelg og ganga um og skoða ótrúlega náttúrufegurðina og strendurnar. Við ákváðum að taka því rólega á ströndinni og svamla í tærum sjónum þennan dag sem var algjörlega ógleymanlegur. 

Á kvöldin var sameiginlegur kvöldverður í skipinu fyrir alla talmeinafræðingana og sátum við til borðs með öðrum talmeinafræðingum frá ýmsum löndum. Þátttakendur voru langflestir frá Bandaríkjunum en nokkrir frá Evrópu og þótti mjög merkilegt að við værum komnar frá litla Íslandi. 

Að sjálfsögðu nýttu spilaóðir talmeinafræðingar einnig tækifærið til að kaupa alls kyns meðferðarefni og spennandi spil til að nota við þjálfun þar sem úrval er ótæmandi í Ameríku og svo margt sniðugt til. 

Þetta var að okkar mati algjör drauma ráðstefnuferð sem við mælum með og nær hún að samtvinna fræðslu, skemmtun og afslöppun sem er einmitt það sem við þurfum öll á að halda. Við munum að sjálfsögðu fara aftur einn daginn!

Karabísku drottningarnar Álfhildur, Halla, Hildur Edda og Jane Petra