Ágústa Guðjónsdóttir, Anna Lísa Benediktsdóttir og Eyrún Rakel Agnarsdóttir

 

Ritnefnd hafði samband við nokkra talmeinafræðinga sem halda úti gagnlegum upplýsingasíðum um málefni sem tengjast talmeinafræði

 

Töfratal hefur að markmiði að valdefla foreldra með því að veita einfaldar og aðgengilegar upplýsingar um málþroska og málörvun barna. Að baki Töfratals standa talmeinafræðingarnir Anna Lísa Benediktsdóttir, Ágústa Guðjónsdóttir og Eyrún Rakel Agnarsdóttir. Við kynntumst í meistaranáminu í talmeinafræði og höfum haldið hópinn síðan. Það var Eyrún sem fékk hugmyndina að því að búa til vettvang til að deila fræðslu og fróðleik til foreldra. Hún hafði tekið eftir miklum áhuga í hvert sinn sem hún birti efni í tengslum við málþroskann á sínum eigin miðli og vissi því að það væri eftirspurn eftir slíku efni. Eyrún er drífandi og tvínónar ekki við hlutina en vissi að hún vildi fá fleiri með sér í lið. Hún leitaði því til þeirra Ágústu og Önnu Lísu sem tóku vel í hugmyndina og úr varð Töfratal. Saman myndum við gott teymi, vegum hver aðra upp og nýtum styrkleika hverrar og einnar.

Snemma árs 2024 birtust fyrstu færslurnar á instagramsíðu Töfratals og hafa viðtökurnar frá upphafi verið framar vonum. Við höfum upplifað mikla jákvæðni og velvilja úr öllum áttum. Okkur þykir svo innilega vænt um alla hvatninguna sem við höfum hlotið frá foreldrum og kennurum, en ekki hvað síst frá öðrum talmeinafræðingum.

 

Markmiðið hefur frá upphafi verið að efla og styrkja foreldra. Í störfum okkar höfum við fundið fyrir gífurlegri vöntun á fræðslu um málþroska og málörvun barna. Foreldrar gegna lykilhlutverki í lífi barna sinna og þeir hafa því langmest vægi þegar kemur að því að styðja við þroskaframvindu þeirra. Með Töfratali viljum við auka þekkingu foreldra á mikilvægi málþroskans og benda á leiðir til að efla hann á margvíslegan máta. 

Við stöllur lögðum af stað í ferðalag sem ekki sér fyrir endann á. Framundan er ýmislegt spennandi í bígerð sem við hlökkum til að líti dagsins ljós.