Sonja Magnúsdóttir @maturogmunnur #maturog munnur 

Ritnefnd hafði samband við nokkra talmeinafræðinga sem halda úti gagnlegum upplýsingasíðum um málefni sem tengjast talmeinafræði

Árið er 2016. Á þessum tímapunkti hafði ég sótt nokkur námskeið erlendis um fæðuinntöku barna og vanda þeim tengdum. Í kjölfarið var ég farin að spyrja foreldra allra nýrra skjólstæðinga hvernig þeim gengi að borða og mikill fjöldi svaranna var á svipaðan máta: ,,jú jú, það gengur vel að borða, vill helst bara jógúrt og brauð“. Ég var líka farin að gera ítarlegri talfæraskoðanir og þar virtist samnefnarinn með þessum svörum foreldranna liggja. Hreyfifærni tungunnar var almennt takmörkuð þar sem tunguband var stíft. Ég fór að grúska og þar með hófst vegferð sem mig hefði aldrei órað fyrir. 

Það tók nokkra mánuði að láta slag standa og setja inn fyrstu færslu undir heitinu Matur & Munnur á Facebook en það var 02. mars 2017. Markmið með stofnun síðunnar var að miðla þekkingu minni á fæðuinntökuvanda barna og tunguhöftum til foreldra og fagaðila. Ég tók líka þá ákvörðun um að hafa sem flest innlegg á síðunni á íslensku. Nafnið vildi ég hafa lýsandi fyrir þá fræðslu sem sett yrði þar inn, tengda mat og munni. 

Í febrúar 2019 var Instagram-síðan Matur & Munnur stofnuð en upphaflega átti efnið þar inni að vera tileinkað fullorðnum og veikleikum á munnsvæði (e. orofacial myofunctional disorders) en varð fljótlega fyrir alla aldurshópa. 

Viðtökur við síðunum hafa verið mjög góðar og stend ég í þeirri trú að mikil vitundarvakning hafi orðið á áhrifum veikleika á munnsvæði í kjölfar þess fróðleiks sem hefur farið þar inn. Þetta hugarfóstur mitt hefur sannarlega vaxið frá fyrstu færslu og alls konar hugmyndir vaknað fyrir frekari útbreiðslu fræðslunnar, sem sumar hafa verið framkvæmdar og aðrar ekki – ennþá að minnsta kosti.

Ég er Sonja Magnúsdóttir, talmeinafræðingur með ástríðu fyrir tunguhöftum, veikleikum á munnsvæði og bættum lífsgæðum barna og fullorðinna, og ég er á bak við samfélagsmiðlasíðurnar Matur & Munnur.