Ingunn Högnadóttir talmeinafræðingur

 

Ritnefnd hafði samband við nokkra talmeinafræðinga sem halda úti gagnlegum upplýsingasíðum um málefni sem tengjast talmeinafræði

 

Málstol er máltruflun sem getur haft áhrif á tjáningu, málskilning, lestur og skrift. Algengasta orsök málstols er heilablóðfall en ýmis önnur mein í heila geta einnig valdið málstoli. Gera má ráð fyrir að um og yfir hundrað einstaklingar greinist með málstol á Íslandi ár hvert. Málstol hefur ekki aðeins áhrif á þann sem við það glímir, heldur einnig á aðstandendur og vini. Þekking og skilningur á málstoli og aðferðum til að bæta samskipti er einstaklega mikilvæg til að draga úr sálfélagslegum afleiðingum málstols á einstaklinga og aðstandendur. 

Þrátt fyrir óumdeilt mikilvægi þekkingar og skilnings á málstoli, vantaði þó lengi vel aðgengilegar upplýsingar um fyrirbærið á okkar ástkæra og ylhýra móðurmáli. Eitthvað var til af upplýsingum, einblöðungum og greinum sem skrifaðar höfðu verið eða þýddar af talmeinafræðingum en voru samt ekki endilega aðgengilegar almenningi. 

Í mörg ár hafði þessi vöntun verið til umræðu meðal talmeinafræðinga sem unnu í endurhæfingu. Það var svo snemma árs 2022, eftir mikla hvatningu frá kollegum, að ábyrgðarmaður síðunnar tók að safna saman þeim upplýsingum sem til voru á íslensku um málstol, auk þess að þýða ýmislegt gagnlegt efni til að gera aðgengilegt á vefsíðu. Markmið síðunnar var að hún væri fagleg og aðgengileg upplýsingasíða á íslensku fyrir einstaklinga með málstol, aðstandendur þeirra og umönnunaraðila þar sem hægt væri að finna upplýsingar um einkenni, orsakir, afleiðingar og meðferð, auk ítarefnis. Síðan var svo opnuð þann 6. mars 2022, á Evrópudegi talþjálfunar sem hafði þá yfirskriftina „Þjónusta talmeinafræðinga á öllum æviskeiðum“. Talmeinafræðingar í endurhæfingu nýttu þá tækifærið og vöktu athygli á þjónustu sinni við fullorðna, m.a. einstaklinga með málstol og auglýstu síðuna.

Vefsíðan hefur síðan þá notið nokkurra vinsælda en hún fær um 50-100 nýjar heimsóknir í hverjum mánuði. Á síðunni er að finna ýmsar hagnýtar upplýsingar og fróðleik um málstol, einblöðunga, hlekki á meistararitgerðir, fyrirlestra og fleira sem íslenskir talmeinafræðingar hafa lagt vinnu í og gefið leyfi fyrir að deilt sé áfram. Síðan er uppfærð reglulega og er öllum ábendingum um gagnlegt efni og viðbætur vel tekið. 

Ábyrgðarmaður síðunnar er Ingunn Högnadóttir talmeinafræðingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Efni síðunnar kemur úr ýmsum áttum og eiga talmeinafræðingar á Talmeinaþjónustu Landspítalans, Reykjalundi og fleiri þakkir skildar fyrir sitt framlag.

Höfundur greinar er:

Ingunn Högnadóttir