Talmeinafræðingar á Íslandi eru duglegir að sækja ráðstefnur erlendis til að afla sér aukinnar þekkingar. Ritnefndin tók nokkra talmeinafræðinga á tal og fékk að heyra frá ævintýrum þeirra utan landsteinanna.

 

Íslenski hópurinn samankominn í Belgíu

Ég fór á ESLA í lok september 2024. Ráðstefnan var haldin í borginni Bruges í Belgíu. Þetta er í annað sinn sem ég fer á ESLA. Yfirskrift ráðstefnunnar í þetta sinn var The power of communication in the quality of life. Viðfangsefnin voru því mjög fjölbreytt og má ætla að allir hafi fundið fyrirlestra sem nýtast hverjum og einum út frá sérhæfingu og starfsvettvangi. 

Hressir talmeinafræðingar á góðri stund. Íris Dögg er efst til hægri

Mér finnst mjög mikilvægt að fara á áhugaverðar ráðstefnur. Það er fróðlegt að heyra hvað talmeinafræðingar í öðrum löndum eru að fást við. Heyra af nýjustu rannsóknum og niðurstöðum þeirra og auk þess að fá nýjar hugmyndir til að nýta í starfi. Hvað mig varðar og mína vinnu þá hef ég nýtt mér ýmislegt sem fjallað var um varðandi apraxíu og óhefðbundnar tjáskiptaleiðir. Svo var mjög áhugaverður fyrirlestur þar sem fjallað var um ýmis atriði sem gott er að nýta í málhljóðavinnu. Þar var gengið út frá því að gera málhljóðin áþreifanlegri með ýmsum aðferðum. Þá finnst mér mjög mikilvægt að heyra um niðurstöður nýjustu rannsókna varðandi fjöltyngi. Á ráðstefnum erlendis finnst mér alltaf standa upp úr að heyra erindi frá Íslandi. Það var því sérstaklega áhugavert að heyra um efni sem búið er að vera í þróun hérna á Íslandi, Lanis skimunarlistinn og Orðaheimurinn. Hvoru tveggja nýtist mér í mínu starfi. 

 

Það sem vakti mig kannski helst til umhugsunar á ráðstefnunni almennt er staða talmeinaþjónustu í öðrum löndum. Að heyra að talmeinafræðingar í öðrum löndum eru að fást við svipaða hluti og við hérna á Íslandi hvað varðar langa biðlista og flókið málumhverfi. En svo stendur auðvitað líka upp úr samveran með öðrum íslenskum talmeinafræðingum þar sem íslenski hópurinn var ansi stór.

Höfundur: Íris Dögg Rúnarsdóttir talmeinafræðingur hjá Reykjavíkurborg og Talþjálfun Mosfellsbæjar