Mánudagurinn 13. janúar 2025

Kristín Theódóra Þórarinsdóttir, talmeinafræðingur hjá Garðabæ

6:45 Dagurinn minn byrjar oftast á rjúkandi kaffibolla með Agli manninum mínum. Ég myndi skilgreina mig sem mikla A týpu, vil taka daginn frekar snemma í rólegheitunum. Ég vek Þórarinn Smára son minn um 7 leytið og við byrjum að græja okkur fyrir daginn. 

8:30 Dagskráin mín er fjölbreytt og mismunandi eftir dögum. Ég sinni leikskólum Garðabæjar og deili viðveru minni á milli þeirra í lotum ásamt því að sinna öðrum verkefnum, fundum, ráðgjöf og fræðslu. Í dag hef ég bókað foreldramiðaða talþjálfun í einum leikskóla. Ég fer yfir framburðaræfingar með barninu og sýni og handleiði foreldra. Tilgangurinn er að virkja foreldra í markvissri heimavinnu. Við náum góðu spjalli og gengur talþjálfunin vel. Við sammælumst um að heyrast eftir 8 vikur og taka stöðuna. 

9:00 Ég hef bókað málþroskamat fyrir tvo unga drengi í sama leikskóla. Eitt endurmat hjá rúmlega fjögurra ára gömlum dreng og fyrsta mat hjá einum þriggja ára. Ég reyni að gefa mér tíma til að spjalla við sérkennslustjóra og kennara leikskólans á meðan ég er þar, með því upplifi ég meira traust og samvinnan verður betri. Málþroskamatið gengur upp og ofan og úthaldið og samvinnan af skornum skammti hjá báðum drengjunum. Ég þarf að koma aftur og klára prófanirnar. 

11:00 Fundur skólaþjónustuteymis er haldinn hvern mánudag á skólaskrifstofunni. Í skólaþjónustunni eru sálfræðingar, sérkennslufulltrúi, fulltrúar leikskóla og skóla ásamt talmeinafræðingum. Nokkur mál eru tekin upp á fundinum og þau spegluð á þverfaglegan hátt. 

12:00 Ég nota hádegin mikið til að senda og svara tölvupóstum, klára dagnótur og skrifa skýrslur. 

13:30 Ég fer í annan leikskóla eftir hádegi og hitti þar einn ungan dreng. Tilgangurinn er að leggja fyrir MUB málþroskapróf. Hitti hann fyrst á deildinni, spjalla og fylgist með honum í leik. Hann er meira en til í að koma með mér og gengur fyrirlögnin glimrandi vel.  

15:00 Starfsmannafundur Fræðslu – og menningarsviðs er haldinn mánaðarlega. Á fundinum er farið yfir þau verkefni sem eru í vinnslu á sviðinu og önnur mál sem falla til af yfirmanninum, fjárhagsáætlun kynnt og betri vinnutími ræddur. 

16:30 Ég er oftast bókuð í ræktina kl. 16:30 á mánudögum svo ég er orðin óþreyjufull rúmlega 16 þegar fundurinn klárast. Ég mæli mér mót við Egil og næ rétt svo að lenda á dýnunni í Laugum á réttum tíma. Þar næ ég að svitna vel og pústa út/losa um orku eftir amstur dagsins. 

17:30 Þegar ég kem heim þá er Þórarinn nýkominn af körfuboltaæfingu. Við náum spjalli um daginn og ræðum kvöldmat. Í kvöld verður fiskur sem ég var búin að taka úr frysti. Sonurinn tekur ekkert sérstaklega vel í það en sættir sig við valið.  

 

Kvöldið fer í heimalestur hjá drengnum, spilatíma og notalegheit. Er að fylgjast með þáttum sem heita Silo og við Egill náum að horfa á einn þátt áður en stuttur bókalestur tekur við fyrir svefninn. Slekk á ljósi ca. 10:30 tilbúin fyrir næsta dag.