
Tinna Sigurðardóttir
Ritnefnd hafði samband við nokkra talmeinafræðinga sem halda úti gagnlegum upplýsingasíðum um málefni sem tengjast talmeinafræði
Ég heiti Tinna og er talmeinafræðingur. Síðan ég stofnaði Tröppu árið 2014 hef ég starfað þar og leitað allra leiða til að efla almenna vitneskju um málþroska í gegnum starfið mitt. Babbl og spjall varð til 2018 þegar ég stofnaði hóp á Facebook sem þróaðist svo út í instagramsíðuna Babbl og spjall og svo er ég líka á tiktok en þar heiti ég nafni hliðarsjálfs míns tidzja.
Mér fannst ég reka mig á það ítrekað í starfi að bæði foreldrar og fagfólk var óöruggt í vinnu með málþroska og treysti mikið á talmeinafræðinginn. Mér fannst vanta að útskýra á mannamáli hvað væri verið að tala um þegar verið er að tala um málþroska. Ég bý aðallega til myndbandsinnslög þar sem ég ræði stuttlega góð ráð til málörvunar, fjalla um rannsóknir, tala um einkenni seinkaðs málþroska og málþroskaröskunar og reyni að hvetja áhorfendur til að vera vakandi yfir þróun málþroska.

Markmiðið hefur alltaf verið að búa til almenna vitneskju um málþroska. Hvað er verið að tala um þegar talað er um málþroska, er hægt að hafa áhrif á málþroska og þá hvernig og hvaða máli skiptir málþroski. Þessi áhugi minn hefur svo þróast út í mikinn áhuga á tengslamyndun og hvernig málþroski er þar höfuðbreyta og hvernig þetta tvennt er nánast óaðskiljanlegt. Til þess að örva og búa til góðan málþroska er nauðsynlegt að hafa góð samskipti og á okkar tímum er það hægara sagt en gert með áreitum og flækjustigum þegar kemur að tengslum manna á milli. Ég hef þannig reynt að ítreka það að góð tengsl eru forsenda góðs málþroska því það sem við gerum til að viðhalda góðum tengslum, spjalla saman, gera eitthvað skemmtilegt saman, vera góð við hvert annað, lesa bækur, þetta eru allt frábærar leiðir til málörvunar. Góður málþroski í æsku hefur fylgni við margt annað í lífinu og því mikilvægt að hlúa vel að honum og styrkja tengsl foreldris og barns um leið. Það er mjög flókið að vera foreldri í dag, alls kyns upplýsingar dynja á úr öllum áttum, börnin búa stundum hjá mömmu og stundum hjá pabba, allir eru frekar uppteknir og sjaldan sem við gefum okkur stundir til að vera bara saman án þess að vera með þétta dagskrá eða allt mögulegt annað í forgangi.

Viðtökurnar eru mjög góðar og mér þykir alltaf vænt um þegar ég fæ falleg skilaboð frá fólki sem hefur nýtt sér fræðsluna sem gerist endrum og eins, og eins hef ég svarað fólki sem sendir mér fyrirspurnir. Sumir hafa verulegar áhyggjur og vita ekki hvert á að leita sem er ekki gott og bendir til að kerfin okkar séu ekki nægilega smurð og þar sé ekki nægar upplýsingar að fá þegar fólk hefur áhyggjur – hér er ég að tala t.d. um ungbarnavernd og leikskólana. Ég hef gefið kost á fyrirspurnum í gegnum miðlana og deili þá svörunum með öðrum svo allir græði. Fyrirspurnirnar sem ég fæ staðfesta það að vitneskja um málþroska er langt frá því almenn og ég tel það vera eina af skyldum okkar stéttar að fræða um okkar sérsvið, auka meðvitund um málþroska t.d. og þýðingu hans. Þrátt fyrir mikla vinnu sem liggur á bakvið þessa miðla þegar ég er í sem mestu stuði er fylgjendahópurinn ekkert rosalega stór eða í kringum 2000 manns svo akurinn er langt í frá plægður að fullu!