Talmeinafræðingar á Íslandi eru duglegir að sækja ráðstefnur erlendis til að afla sér aukinnar þekkingar. Ritnefndin tók nokkra talmeinafræðinga á tal og fékk að heyra frá ævintýrum þeirra utan landsteinanna.

 

Linda Björk Markúsardóttir, talmeinafræðingur á Landspítala og Talsetrinu

 

Í nóvember 2023 fjölmenntu íslenskir talmeinafræðingar (sjá meðfylgjandi mynd) á þriggja daga ASHA ráðstefnu í Boston. Yfirskrift hennar var Igniting Innovation, sem gæti útlagst sem Kynt undir nýsköpun á íslensku. ASHA stendur fyrir American Speech and Hearing Association og er bandarískt ígildi Félags talmeinafræðinga á Íslandi, að viðbættum heyrnarfræðingum. Þessi ráðstefna er risastór, þetta ár mættu 14 þúsund manns og 350 unnu á ráðstefnusvæðinu. Til að setja það í samhengi þá bjuggu 346 manns á Hellissandi árið 2024.

Á ráðstefnunni er hægt að finna fyrirlestra og vinnustofur um allt sem viðkemur starfi talmeinafræðinga, burtséð frá því hver sérhæfing þeirra er og hvaða aldurshópi þeir sinna. Dagskráin var svo yfirgripsmikil að það var heljarinnar hausverkur að forgangsraða fyrirlestrum en það tókst að lokum, þótt sex klukkustunda flugferð yfir Atlantshafið hafi ekki dugað til verksins. Það sem stóð upp úr voru einkum þrír fyrirlestrar sem ég sótti. Einn fjallaði um mikilvægi munnhreinsunar til að fækka ásvelgingarlungnabólgum, annar um ákveðin mælanleg merki í röddum fólks sem gera það mögulegt að greina sjúkdóma á borð við Parkinsons án þess að líkamleg einkenni hafi komið fram og sá þriðji um gagnsemi öndunarþjálfa í fyrirbyggjandi skyni gegn radd- og kyngingarvanda fólks með ýmiss konar tauga- og hrörnunarsjúkdóma. Þeir höfðu hvað mest notagildi fyrir mitt starf sem talmeinafræðingur á endurhæfingarsviði LSH. Ég hafði ætlað mér að fara á ASHA frá því ég byrjaði í talmeinafræðináminu árið 2010 en þessi viðburður er ákveðin eldskírn fyrir talmeinafræðinga frá litla Íslandi. Óhætt er að mæla með ráðstefnunni út frá þessari upplifun og það væri gaman að fara aftur eftir um það bil fjögur ár, af pólitískum og mannréttindatengdum ástæðum.

Metfjöldi íslenskra talmeinafræðinga á ASHA 2023