Talfræðingurinn 2010

Talfræðingurinn, tímarit Félags talkennara og talmeinafræðinga, er kominn út.

Umfjöllunarefni blaðsins að þessu sinni er er Málþroskafrávik, skólabörn í brennidepli. Í blaðinu eru 14 greinar sem fjalla um fræðilegt efni og hagnýtar ráðleggingar.

 
Námskeið í meðhöndlun hljóðkerfisraskana

Námskeið í meðhöndlun hljóðkerfisraskana verður haldið þriðjudaginn 15. júní kl. 14-17 í Valhöll, Háaleitisbraut 1

 Um er að ræða stutt námskeið í meðhöndlun hljóðkerfiserfiðleika barna. Stuðst verður við aðferðir sem þróaðar hafa verið við British Columbia háskólann í Vancouver, Kanada.

Read more...
 
Aðalfundur Félags talkennara og talmeinafræðinga 2010
Friday, 26 February 2010 10:20

Aðalfundur félagsins verður haldinn laugardaginn 6. mars 2010 kl 9:00 á Háaleitisbraut 1, Reykjavík (í Valhöll, sama húsi og HTÍ). Kl. 8:30 verður morgunverður í boði félagsins. Á eftir aðalfundinum verður kynning á Heyrnar- og talmeinastöðinni.

 
Evrópudagur talþjálfunar 6. mars - þema dagsins er raddvandamál

Evrópusamtök talmeinafræðinga, CPLOL, hafa valið 6. mars sem dag talþjálfunar. Þema dagsins að þessu sinni er rödd og raddvandamál. Nánari upplýsingar um daginn er að finna á heimasíðu samtakanna á slóðinni: http://cplol.eu/eng/EU%20day.htm 

 
Aðalfundur FTT 2010
Saturday, 13 February 2010 00:00

Því miður verður því ekki komið við að halda aðalfund Félags talkennara og talmeinafræðinga á Akureyri eins og áformað var vegna erfiðleika við að útvega gistingu. Aðalfundurinn hefur því verið færður og verður haldinn á höfuðborgarsvæðinu laugardaginn 6. mars. Fundarstaður og dagskrá veður auglýst síðar.

 
Frá ritnefnd talfræðingsins
Friday, 22 January 2010 16:40

Kæru félagar í FTT

Við óskum eftir metnaðarfullum greinum í næsta Talfræðing sem er áætlað að komi út fyrir næsta aðalfund þ.e í mars 2010. Þema blaðsins er að þessu sinni málþroski og málþroskafrávik skólabarna með breiðri tilvísan. Við viljum beina spjótum okkar frekar að eldri börnum, þ.e. börnum í grunn og framhaldsskóla. Okkur þætti afar vænt um að félagsmenn taki beiðni okkar vel og sendi inn hugmynd að grein ásamt stuttri lýsingu um innihald. Greinin þarf síðan að vera tilbúin í byrjun febrúar 2010.

Read more...
 
Joomla Templates by Joomlashack