|
|
Evrópudagur talþjáfunar 6. mars 2009 |
|
|
|
Friday, 06 March 2009 00:00 |
|
Í dag 6. mars er Evrópudagur talþjálfunar og í ár er hann helgaður taugafræðilegum tal- og málmeinum hjá börnum og fullorðnum. Ýmsir taugasjúkdómar hafa áhrif á tal, mál og tjáskiptagetu einstaklinga. Má þar nefna t.d. parkinsonsveiki, MS, MND, heilablóðfall, flogaveiki, heilalömun og heila- og heilahimnubólgu. Áhrif þessara sjúkdóma eru misjöfn á getu fólks til að tjá sig og skilja aðra. Hjá sumum er það skýrleiki talsins sem skerðist, hjá öðrum |
|
meira
|
|
|
Andsvar Fréttablaðið |
|
|
|
Að gefnu tilefni gerir Stjórn Félags talkennara og talmeinafræðinga athugasemd við orð Guðbjargar Guðmundsdóttur verkefnisstjóra kynningarmála hjá Tryggingastofnun ríkisins sem höfð eru eftir henni í Fréttablaðinu föstudaginn 11. apríl 2008 Eftir Guðbjörgu er þetta haft: “Tryggingastofnun gerði athugasemd við vinnubrögð talmeinafræðinga og töldu að samningsbrot hefði átt sér stað, en eftir þær athugasemdir sagði stór hluti talmeinafræðinga sig frá samningi.” og síðar segir “Ástæðurnar fyrir því liggi þó ekki hjá Tryggingastofnun heldur hjá talmeinafræðingum sem sögðu sig frá samningum vegna eðlilegra athugasemda stofnunarinnar.” (Fréttablaðið, 11.04.2008) Sjálfstætt starfandi talmeinafræðingar hafa engan áhuga á að dvelja við það sem er búið og gert. Það kemur ekki á óvart að málsaðilar líti misjöfnum augum á orsök ástandsins sem nú bitnar á sjúkratryggðum sem þarfnast meðferðar vegna mál- og talörðugleika sinna. Það má þó öllum vera ljóst að algjör trúnaðarbrestur hefur orðið milli TR og sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga. |
|
meira
|
|
Vegna deilu TR og talmeinafræðinga |
|
|
|
Í tilefni af deilu Tryggingastofnunar ríkisins og talmeinafræðinga Þann 11. apríl sl. birtist frétt í Fréttablaðinu um þann aukna kostnað og fyrirhöfn sem einstaklingar sem þurfa á talþjálfun að halda þurfa nú að taka á sig eftir að talmeinafræðingar sögðu sig frá samningum Tryggingastofnunar ríkisins (TR) og Félags talkennara og talmeinafræðinga (FTT). Þar segir fulltrúi TR sökina liggja hjá talmeinafræðingum sem sögðu sig frá samningum „vegna eðlilegra athugasemda stofnunarinnar“. Finn ég mig knúna til að leiðrétta þessa rangfærslu. TR getur ekki firrt sig ábyrgð í þessu máli. Eftir að talmeinafræðingar sögðu sig frá samningum hefur TR beitt fyrir sig regluverki sem hamlar endurgreiðslum vegna kostnaðar við talþjálfun. Heilbrigðisráðuneytið útbjó reglugerð um styrki Tryggingastofnunar ríkisins vegna þjónustu sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga utan samnings. Þar voru gerðar breytingar á læknabeiðnum og þeim upplýsingum sem þurfa að liggja fyrir til að skjólstæðingar okkar fái endurgreiðslu vegna þjálfunarkostnaðar. TR hefur staðið sig mjög illa í að kynna læknum þessar breytingar. Þetta veldur því að skjólstæðingar fá ekki samþykki fyrir endurgreiðslu. Ennfremur er styrkur vegna talþjálfunar skv. ofangreindri reglugerð 33-38% lægri en sú endurgreiðsla sem greidd er skv. samningi TR og FTT, um leið og gerð er krafa um lengri meðferðartíma. |
|
meira
|
|
Talmeinaþjónusta i uppnámi |
|
Sunday, 14 October 2007 00:00 |
|
Morgunblaðið 14.10.2007 Talmeinaþjónusta í uppnámi Frá Þórhalli Hróðmarssyni Það þarf engan að undra þótt talmeinafræðingar segi sig frá samningum við Tryggingastofnun ríkisins. Í skilningi talmeinafræðinga er gert ráð fyrir að hver almenn meðferð sé metin sem 50 mínútna vinnuframlag (í meðfer er innifalin umsýsla, svo sem undirbúningur þjálfunar, ljósritun, símtöl eða bréf til annarra sérfræðinga, bókun og kvittun fyrir þjálfunartíma). Tryggingastofnun stendur á því fastar en fótunum að hver meðferð skuli vara í 50 mínútur (umsýsla ekki innifalin). Það er ekki verið að hugsa um ,,meðferðina" á blessuðum börnunum. Jafnvel leikmanni hlýtur að skiljast að faglega undirbúin löng meðferð hlýtur að skila betri árangri en illa undirbúin löng meðferð. |
|
meira
|
|
|
|