Námskeið í meðhöndlun hljóðkerfisraskana PDF Print E-mail
Written by Administrator   
Friday, 14 May 2010 11:14

Námskeið í meðhöndlun hljóðkerfisraskana verður haldið þriðjudaginn 15. júní kl. 14-17 í Valhöll, Háaleitisbraut 1

 Um er að ræða stutt námskeið í meðhöndlun hljóðkerfiserfiðleika barna. Stuðst verður við aðferðir sem þróaðar hafa verið við British Columbia háskólann í Vancouver, Kanada.

 

Farið verður yfir tvær þjálfunaraðferðir sem hafa verið í þróun við B.C. háskólann síðustu tvo áratugi, annars vegar notkun lagskiptrar hljóðkerfisfræði (non-linear phonology) í markmiðssetningu og þjálfun og hins vegar stutt lýsing á svokallaðri „ultrasound“ aðferð við þjálfun á framburði. Tekin verða fyrir dæmi um hljóðmyndun íslenskra og enskumælandi barna.

 

Fyrirlesarar eru hjónin og fræðimennirnir Barbara May Bernhardt og Joe Stemberger.  Þau eru bæði talmeinafræðingar, hún er yfirmaður talmeinadeildar við British Columbia háskólann og hann er yfirmaður málvísindadeildar við sama skóla. Þau eru jafnframt sérfræðingar í hljóðkerfis- og framburðarerfiðleikum barna og hafa ritað fjöldann allan af greinum og bókum um efnið.

 

Námskeiðið fer fram þriðjudaginn 15. júní kl. 14-17.

 

Verð:  Kr. 4.000,-  Innifalið: námskeiðsgögn og kaffi 

 

Skráning: talmein [hjá] talmein.is eða hjá Þóru Más: thoramas [hjá] hti.is

Vinsamlega takið fram ef greiðandi er annar en þátttakandi.

 

 P.s. Þessi auglýsing er birt með örlitlum fyrirvara um hugsanlegar tafir á flugi vegna öskufalls. Þó eru yfirgnæfandi líkur á að námskeiðið verði haldið. Upplýsingar um annað munu berast með góðum fyrirvara.

Last Updated on Wednesday, 23 June 2010 10:40
 
Joomla Templates by Joomlashack