|
Written by Administrator
|
|
Friday, 22 January 2010 16:37 |
|
Evrópusamtök talmeinafræðinga CPLOL hélt ráðstefnu í Lubljana í maí. Annar af árlegum fundum með fulltrúum aðildarlandanna var haldinn við sama tækifæri og sóttu fullrúar okkar þær Sigríður Magnúsdóttir og Valdís B. Guðjónsdóttir bæði fundinn og ráðstefnuna, sem var mjög athyglisverð. Í október var síðari fulltrúafundurinn haldinn í Tórínó og var þá jafnframt haldinn aðalfundur.
Á aðalfundinum var skipt um stjórn og voru kosnir þrír nýir sjórnarmeðlimir. Á fundinum voru samþykktar siðareglur aðila samtakanna en drög að þeim voru sendar félögum FTT á seinasta ári. Þær er að finna á heimasíðu CPLOL www.cplol.eu . Á árinu var sótt um styrk heimild til að sækja um styrk til samtakanna sem á að nýtast til að vinna að samræmingu á náminu í öllum aðildarlöndunum. Við fengum synjun en það hefur verið ákveðið að sækja um aftur. |
|
Last Updated on Wednesday, 27 January 2010 22:01 |