Frá ritnefnd talfræðingsins PDF Print E-mail
Written by Administrator   
Friday, 22 January 2010 16:40

Kæru félagar í FTT

Við óskum eftir metnaðarfullum greinum í næsta Talfræðing sem er áætlað að komi út fyrir næsta aðalfund þ.e í mars 2010. Þema blaðsins er að þessu sinni málþroski og málþroskafrávik skólabarna með breiðri tilvísan. Við viljum beina spjótum okkar frekar að eldri börnum, þ.e. börnum í grunn og framhaldsskóla. Okkur þætti afar vænt um að félagsmenn taki beiðni okkar vel og sendi inn hugmynd að grein ásamt stuttri lýsingu um innihald. Greinin þarf síðan að vera tilbúin í byrjun febrúar 2010.

 

Sérstaklega fögnum við greinum frá okkar félagsmönnum sem eru að vinna í grunnskólum landsins og þekkja það í daglegu starfi hvernig það er að takast á við þessi börn. Það mætti koma með reynslusögur úr daglegu starfi eða segja frá einstöku ónafngreindu barni og lýsa því hvernig unnið hefur verið með viðkomandi og hvernig það hefur reynst. Tengsl lestrar við málþroskafrávik er einnig mjög spennandi viðfangsefni og væri frábært að fá einhverjar greinar um það.

Nú er tíminn til að byrja að skrifa, fræðilega grein, vangaveltur, eða hugmyndir að þjálfunarefni fyrir börn með frávik í máli og tali á skólaaldri. Þegar eru komnar hugmyndir eða drög að nokkrum greinum en við viljum gjarnan fá fleiri.

Vinsamlegast sendið hugmyndir sem fyrst til ritnefndar og einnig ef þið viljið koma einhverju skemmtilegu á framfæri.

Í ritnefnd eru Ingibjörg Símonardóttir This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it , Jóhanna Einarsdóttir This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it , Eyrún Ísfold Gísladóttir This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it , Bryndís Guðmundsdóttir This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it og Þóra Sæunn Úlfsdóttir  This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

Við tökum öllum fagnandi og svörum pósti með glöðu geði.

Ef þið hafið einhverja hugmynd hikið þá ekki að hafa samband við okkur og við reynum ef við getum að aðstoða ykkur eftir fremsta megni.

kveðja

f.h. ritnefndar

Jóhanna Einarsdóttir

Last Updated on Friday, 22 January 2010 16:45
 
Joomla Templates by Joomlashack