Örnámskeið um miðjan júní 2010 PDF Print E-mail
Written by Administrator   
Friday, 22 January 2010 16:38

Námskeið í meðhöndlun hljóðkerfiserfiðleika barna eftir aðferðum sem þróaðar hafa verið við British Columbia háskólann í Vancouver, Kanada.

Farið verður yfir tvær þjálfunaraðferðir sem hafa verið í þróun við B.C. háskólann síðustu tvo áratugi, annars vegar notkun lagskiptrar hljóðkerfisfræði (non-linear phonology) í markmiðssetningu og þjálfun og hins vegar stutt lýsing á svokallaðri „ultrasound“ aðferð við þjálfun á framburði.

 

Fyrirlesarar eru hjónin og fræðimennirnir Barbara May Bernhardt og Joe Stemberger.  Þau eru bæði talmeinafræðingar, hún yfirmaður talmeinadeildar við British Columbia háskólann og hann yfirmaður málvísindadeildar við sama skóla. Þau eru jafnframt sérfræðingar í hljóðkerfis- og framburðarerfiðleikum barna.  Þóra Másdóttir vinnur að rannsókn í samstarfi við May og Joe og er það megin ástæða heimsóknar þeirra til Íslands en jafnframt hefur þau lengi dreymt um að heimsækja og ferðast um landið. Að lokinni Íslandsheimsókninni er förinni heitið til Oslóar en þar fer fram ráðstefna International Clinical Phonetics and Linguistic Association (ICPLA) þar sem hin yfirgripsmikla rannsókn (sem m.a. Þóra tekur þátt í) verður kynnt.  Sjá nánar um samtökin og ráðstefnuna: www.ucs.louisiana.edu/~mjb0372/ICPLA.html  

Tilvalið þótti að nýta ferð fræðimannanna tveggja og bjóða upp á örnámskeið í meðhöndlun hljóðkerfiserfiðleika barna fyrir íslenska talmeinafræðinga.  Námskeiðið fer mjög líklega fram þriðjudaginn 15. júní kl. 14-17.  Dagsetning er þó ekki endanlega komin á hreint en verður um þetta leyti.  Sjá nánari tilkynningu síðar.

Last Updated on Friday, 22 January 2010 17:00
 
Joomla Templates by Joomlashack