Talmeinafræði við Háskóla Íslands PDF Print E-mail
Written by Administrator   
Friday, 22 January 2010 16:33

Sl. haust hófst formlegt undirbúningsnám fyrir þá sem ætla að hefja þverfaglegt meistaranám í talmeinafræði. Nokkur hópur er farinn að undirbúa sig og komast greinilega færri að en vilja. Það þarf að velja inn í þennan fyrsta hóp samtals 15 nemendur og því má eiginlega segja að um nokkurs konar „klásus“ (numerus clausus) sé að ræða, líkt og lengi hefur tíðkast í læknisfræði og fleiri greinum.

 

Eftir að háskólaráð HÍ samþykkti að farið yrði af stað haustið 2010 með námsbraut í talmeinafræði innan læknadeildar var hafist handa við að semja reglur um námið og reglur um inntökuskilyrði. Sjá www.hi.is/is/skolinn/reglur_nr_972_2009. Verið er að vinna að nákvæmri fjárhagsáætlun því nú vill enginn gera neitt nema greiðslur séu tryggar fyrir öllu. Í framhaldi af því verður auglýst staða dósents og vonandi önnur staða þegar líður á árið. Mörg námskeið þarf að kenna í stundakennslu og þarf að fá sérhæfða talmeinafræðinga til að koma að því, þar sem hver kennir á sínu sérsviði. Stundakennsla á háskólastigi hefur aldrei verið hálaunastarf en það er vissulega spennandi fyrir okkur sem faghóp að fá nú loksins tækifæri til þess að sjá um menntun talmeinafræðinga á okkar tungumáli í okkar landi og við verðum að standa saman að því að gera þetta nám eins gott og kostur er.

Í bráðabirgðanámsstjórn eru Guðmundur Þorgeirsson, forseti Læknadeildar, formaður stjórnar, Þórður Kristinsson og Halldór Jónsson frá stjórnsýslu HÍ, Jörgen Pind og Eiríkur Rögnvaldsson úr sálfræði og íslensku við HÍ, og talmeinafræðingarnir Jóhanna Einarsdóttir og Sigríður Magnúsóttir. Við Jóhanna höfum hitt þær Þóru Másdóttur og Þórunni Hönnu Halldórsdóttur nokkuð oft til að vinna að ýmsum málum um leið og þau koma upp. Við erum núna að gera mönnunarmódel af kennaraþörfinni og eftir jólin ætlum við svo að byrja á því að undirbúa starfsnámið með þeim Þóru og Þórunni Hönnu. Þá reynir á okkur öll að sýna hvað í okkur býr. Það verður erfitt að koma öllum nemunum fyrir í starfsnámi en það er nauðsynlegt að allir starfandi talmeinafræðingar byrji að velta því fyrir sér hvað hver og einn getur lagt af mörkum til að búa nýliðana sem best undir framtíðarstarfið svo að okkur verði sómi að.

Sigríður Magnúsdóttir 

Last Updated on Friday, 22 January 2010 16:37
 
Joomla Templates by Joomlashack