Frá formanni FTT PDF Print E-mail
Written by Administrator   
Friday, 22 January 2010 16:06

Ágætu félagsmenn!

Á síðustu árum hafa fréttir af vettvangi félagsins verið sagðar með því að senda tölvupósta á félagsmenn og birtar á heimasíðunni. Heimasíðan, www.talmein.is, hefur ekki virkað sem skyldi í nokkurn tíma og í ljós hefur komið að tölvupóstar berast ekki öllum af einhverjum ástæðum. í þessu ljósi var ákveðið að senda félagsmönnum fréttabréf til að segja fréttir af því sem hefur verið á döfinni.

 

Heimasíðunn hefur verið breytt og hún uppfærð og ætti að vera einfaldari í notkun. Vinnu við hana er ekki lokið en hugmyndin er að félagar fái úthlutað notendanefni og lykilorði til að komast inn á svæði með upplýsingum sem ekki eru ætlaðar almenningi.

Eftir sem áður óskum við eftir að fá upplýsingar um netföng þannig að við getum sent félögum tölvupóst. Listi yfir netföng félaga fylgir þessu fréttabréfi með netföngum eins og þau eru skráð hjá félaginu. Félagsmenn eru vinsamlegast beðnir um að senda leiðréttingar á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

Þó lítið hafi ef til vill heyrst frá félaginu hefur verið í mörgu að snúast hjá stjórn félagsins, skrifa bréf, veita umsagnir, ýta málum áfram, koma fram fyrir hönd félagsins og tala máli þess og styðja við nefndir félagsins þegar eftir því hefur verið leitað.  

Markverðasti viðburður ársins er án efa staðfesting háskólaráðs um að hefja nám í talmeinafræði við Háskóla Íslands nú í haust. Tæplega verður sagt að baráttan hafi verið löng en þessum árangri hefði ekki verið náð án mikillar og óeiginlegrar vinnu félaga okkar.

Nú er unnið að fullum krafti að útgáfu Talfræðingsins og eru félagsmenn hvattir til að bregðast vel við óskum ritnefndar um greinar.

 

Ný lög um heilbrigðisstarfsmenn eru komin til 3. umræðu á Alþingi og verða örugglega samþykkt fljótlega. Í kjölfarið verður að endurskoða reglugerð um réttindi og skyldur talmeinafræðinga. Stjórn FTT sendi heilbrigðisnefnd umsögn sína í vetrarbyrjun og þegar hefur verið rætt við Landlækni og Heilbrigðisráðuneytið um aðkomu talmeinafræðinga að endurskoðun reglugerðarinnar.

 

Í byrjun árs 2009 fóru fulltrúar FTT á fund heilbrigðisráðherra og ræddu möguleika á að finna lausn á deilu sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga og Sjúkratrygginga Íslands (SÍ). Það var niðurstaða að SÍ skyldi setjast að samningum við FTT og að reynt yrði til þrautar að ná sáttum. Það verður að segjast eins og er að þrátt fyrir fundi allt árið þokaðist lítið. SÍ taldi sig ekki hafa neitt svigrúm til breytinga á rammasamningi sínum. Til úrslita dró á fundi þann 4. janúar 2010 og í framhaldinu kvaðst SÍ birta sitt tilboð í nýjum rammasamningi. Þegar hann hefur verið birtur verður hver og einn að taka afstöðu til þess hvort hann segi sig inn á samninginn.

 

Í þessum stutta pistli hefur ekki verið hægt að segja frá öllum þeim sem vinna að málefnum félagsins. Félagar eru ekki margir en leggja mikið af mörkum og hér hefur t.d. ekki verið minnst á réttindanefnd, fræðslunefnd og íðorðanefnd sem þó hafa starfað vel á árinu.

Stjórn Félags talkennara og talmeinafræðinga óskar félagsmönnum velfarnaðar á komandi ári og vonast til að sjá sem flesta á aðalfundi félagsins sem verður að þessu sinni á Akureyri laugardaginn 6. mars 2010.

 

Með vinsemd,

Kristinn Hilmarsson formaður FTT

 

Last Updated on Friday, 22 January 2010 16:31
 
Joomla Templates by Joomlashack