|
Siðareglur Félags talkennara og talmeinafræðinga Skyldur gagnvart skjólstæðingi Frumábyrgð talkennara og talmeinafræðinga er að standa vörð um sjálfstæði og velferð skjólstæðinga. Þeir skulu veita skjólstæðingum eða forráðamönnum þeirra upplýsingar um niðurstöður greiningar , valkosti í meðfer og þau úrræði sem fyrir hendi eru. Áhersla skal lögð á rétt þeirra til sjálfsákvörðunar. Talkennarar og talmeinafræðingar skulu veita skjólstæðingum sínum bestu hugsanlega meðferð sem miðar að því að hæfa þá eða endurhæfa að því marki sem vandkvæði þeirra leyfa. Talkennarar og talmeinafræðingar veita faglega þjónustu óháð kynferði, þjóðerni, kynþætti, stjórnmálaskoðunum, trúarbrögðum, þjóðfélagsstöðu eða aldri skjólstæðinga. Talkennarar og talmeinafræðingar skulu ekki taka upp persónulegt samband við skjólstæðinga sem breytt gæti gagni meðferðar og ekki notfæra sér sambönd sem þeir hugsanlega öðlast í gegnum starf sitt í ábata eða hagsmunaskyni. Talkennarar og talmeinafræðingar skulu ekki láta starfsframa eða fjárhagslegan ábata hafa áhrif á framgang meðferðar. Þeir skulu ekki taka við gjöfum eða fé eða annars konar hvatningu sem haft gæti áhrif á faglegt mat. Talkennarar og talmeinafræðingar skulum meta árangur meðferðar og hætta eða gera hlé á henni ef sýnt er að skjólstæðingi gagnist hún ekki. Talkennarar og talmeinafræðingar skulu ekki fyrir fram lofa tilteknum árangri af meðferð . Láti talkennarar og talmeinafræðingar aðstoðarfólk sitt eða nema sjá um meðferð ber að sjá þeim fyrir nægilegri leiðsögn og taka ábyrgð á verkum þeirra. Þegar nemi er látinn annast meðferð í menntunarskyni undirleiðsögn skal viðkomandi skjólstæðingi eða forsjármanni gerð grein fyrir því og þeir skulu hafa rétt á að hafna slíkri meðferð. Trúnaður við skjólstæðinginn Talkennarar og talmeinafræðingar eru bundnir þagnarskyldu varðandi þær upplýsingar er þeim er trúað fyrir í starfi um einkahagi fólks og sömuleiðis um það hverir skjólstæðingar þeirra eru. Þetta gildir einnig að skjólstæðingi látunum. Talkennarar og talmeinafræðingar mega gefa upplýsingar umpersónulega og heilsufarslega hagi skjólstæðinga þegar það er nauðsynlegt með tilliti til þarfa og meðferðar skjólstæðingsins. Í þeim tilvikum skal leitað samþykkis skjólstæðings, forráðamanns eða nánasta ættingja. Í þeim tilvikum þar sem landslög kveða á um upplýsingaskyldu til stjórnvalda skulu upplýsingarnar takmarkast við það sem skiptir máli fyrir meðferð máls. Skýrslur um skjólstæðinga eru trúnaðarmál. Aðgang að þeim hafa aðeins skjólstæðingar eða forráðamenn þeirra og tilvísunaraðilar. Óski stéttarsystkini eða aðrar starfstéttir eftir skriflegum upplýsingum þarf leyfi skjólstæðings eða forráðamanns hans. Í þeim tilvikum ber að minna á þagnarskyldu. Talkennarar og talmeinafræðingar skulu ganga þannig frá greinargerðum sínum að þær misskiljist ekki og ekki sé hægt að misnota þær. Skýrslur skulu gerðar með viðtakanda í huga. Skipti skjólstæðingur um talkennara eða talmeinfræðing skulu þeir hafa samráð og skiptast á faglegum upplýsingum, nema skjólstæðingur óski eftir að það sé ekki gert. Séu upplýsingar um skjólstæðinga notaðar í kennslu, greinaskrifum eða á annan opinberan hátt skal séð til þess að ekki sé hægt að bera kennsl á þá. Sé ætlunin að nota feril einstaks skjólstæðings í slíkum tilgangi og á þann veg að ekki er unnt að dylja um hvern er fjallað, skal leita samþykkis skjólstæðings eða forráðamanns hans.
Menntun og viðhald hennar Starfandi talkennarar og talmeinafræðingar skulu hafa yfir að ráð þeirri menntun sem viðurkennd er af félagi þeirra og viðkomandi yfirvöldum. Þeir skulu búa yfir þeirri hæfni sem fagið krefst og hafa yfirgripsmikla þekkingu á töluðu og rituðu formi þess tungumáls sem þeir vinna með í starfi sínu. Talkennarar og talmeinafræðingar skulu viðhalda fagþekkingu sinni og bæta við hana í þeim tilgangi að geta boðið skjólstæðingum sínum bestu hugsanlega meðferð. Þeir skulu gætta eða gera hlé á faglegu starfi, komi til þess að tímabundinn misbrestur verði á faglegri hæfni þeirra. Skyldur tengdar rannsóknarvinnu Talkennarar og talmeinafræðingar sem starfa að rannsóknum eða taka þátt í rannsóknarverkefnum skuldbinda sig til að fara að gildandi lögum og vísindalegum siðareglum, innlendum sem alþjóðlegum, sem fjalla um það svið sem þeir rannsaka. Talkennarar og talmeinafræðingar gera grein fyrir rannsóknaniðurstöðum sínum og þeirri þýðingu sem þær hafa. Leitast skal við að ganga þannig frá greinargerðum að ekki sé hægt að misskilja þær eða misnota. Talkennarar og talmeinafræðingar skulu kappkosta að deila niðurstöðum rannsókna sinna með stéttarsystkinum sínum. Talkennarar og talmeinafræðingar skulu einungis gefa út verk í eigin nafni, séu þau algerlega samdar af honum sjálfum (samkvæmt höfundréttarlögum). Sé um að ræða þýðingu, staðfærslu eða „eftirlíkingu“, skal nákvæmra heimilda getið.
Ábyrgð gagnvart samfélaginu Fagfélag talkennara og talmeinafræðinga og einstakir félagar þess skulu kappkosta að upplýsa almenning um að talmeinafræði sem starfsgrein og þá þjónustu sem talkennarar og talmeinafræðingar geta veitt. Varast ver að gefa vanhugaðar yfirlýsingar um nýjar aðferðir sem ekki eru nægilega rannsakaðar Talkennarar og talmeinafræðingar skulu kappkosta að viðhalda og auka framboð þjónustu. Þegar talkennarar og talmeinafræðingar gefa yfirlýsingar í nafni starfsgreinarinnar skulu þær vera málefnalegar og nákvæmar í framsetningu. Talkennarar og talmeinafræðingar sem taka þátt í að svara bréfum opinberlega skulu aðeins veita almennar ráðleggingar.
Skyldur gagnvart stéttarsystkinum - Talkennarar og talmeinafræðingar skulu stuðla að virðingu starfstéttarinnar. Þeir skulu leitast við að eiga góða samvinnu við aðra talkennara og talmeinfræðinga.
- Talkennarar og talmeinafræðingar skulu ekki smala sér skjólstæðingum með því að bera lof á eingin hæfni eða veikja traust skjólstæðings á stéttarsystkinum sínum.
- Talkennarar og talmeinafræðingar sem starfa á opinberum stofnunum eða einkastofnunum skulu ekki gangast undir reglur eða skyldur sem takamarka faglegt sjálfstæði þeirra og heilindi. Þeir skulu styðja starfsfélaga í að verja sjálfstæði sitt. Þeir skulu ekki starfa með aðilum sem stunda ólöglega eða ófullnægjaandi meðferð talmeina. Þeir skulu ekki í ábaraskyni flytja meðferð skjólstæðings af opinberri stofnun yfir á einkarekna stofnun.
- Talkennarar og talmeinafræðingar sem eiga þátt í að vinna bækur, tæki eða efni til nota í þágu starfsins og stéttarinnar skulu setja mál sitt fram á hlutlægan hátt. Þeir eru hvattir til að miðla faglegri þekkingu sinni, reynslu og hagnýtri kunnáttu til stéttarsystkina sinna og nema í faginu. Ekki skal setja persónulegan eða fjárhagslegan ávinning ofar faglegri ábyrgð.
Skyldur gagnvart öðrum starfstéttum - Talkennarar og talmeinafræðingar skulu vera tilbúnir að kynna starf sitt, innihald þess og aðferðir fyrir öðrum starfsstéttum og til að taka þátt í samvinnu með öðrum starfsstéttum þar sem það á við.
- Talkennarar og talmeinafræðingar skulu bjóða skjólstæðingum sínum bestu hugsanlega meðferð og forðast að fara út fyrir sitt svið. Þeir skulu vísa á aðrar starfstéttir þegar þess gerist þörf.
- Ekki er heimilt að taka við umboðslaunum, afslætti eða annars konar launum fyrir tilvísun til annarra fagstétta.
- Talkennarar og talmeinafræðingar skulu virða sérhæfni, skyldur og ábyrgð annarra starfstétta. Þeir skulu vera vakandi fyrir því að færni, tækni og styrkur annarra starfsstétta geti nýst skjólstæðingi þeirra.
|