Fyrirlestur: Hljóðþróun og framburður barna PDF Print E-mail
Written by Administrator   
Monday, 20 April 2009 16:48

Íslenska málfræðifélagið kynnir: Fyrirlestur í Háskóla Íslands. Miðvikudaginn 22. apríl kl 16 - 17 í stofu 423 í Árnagarði. Hljóðþróun og framburður íslenskra barna. Þóra Másdóttir, doktor í talmeinafræði frá Newcastle University og sérfræðingur við Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.

 

Í erindi sínu fjallar Þóra um niðurstöður doktorsrannsóknar sinnar sem nefnist ,,Phonological development and disorders in Icelandic-speaking children". Markmið rannsóknarinnar var tvíþætt. Annars vegar var um að ræða langsniðsrannsókn þar sem hljóð- og hljóðkerfisþróun tveggja til þriggja ára barna var athuguð. Hins vegar var tal fjögurra til fimm ára barna með alvarleg hljóðkerfisfrávik rannsakað. Sú tilgáta var lögð fram að frávik barna með greinanlega seinkun í framburði svipaði til framburðartilbrigða yngri barna með eðlilegan málþroska. Helstu niðurstöður fyrri hluta rannsóknarinnar voru þær að frávikum barna í yngri hópnum fækkaði umtalsvert milli prófana og hljóðferlum fækkaði á sömu lund, eins og gera mátti ráð fyrir. Seinni hluti rannsóknarinnar leiddi í ljós að frávik eldri barnanna reyndust að mestu leyti sambærileg framburðartilbrigðum yngri barnanna, líkt og tilgátan gerði ráð fyrir. Þó virtist frávikshópurinn vera með ákveðin framburðareinkanni sem ekki voru til staðar hjá yngir hópnum. Þóra ræðir um aðferðirnar sem notaðar voru til að greina eðlileg tilbrigði í máltöku yngra barna og röskun í tali eldri barna.

 

Last Updated on Friday, 22 January 2010 16:29
 
Joomla Templates by Joomlashack