|
Bætt hljóðvist í skólum og jafn aðgangur sjúkratryggðra að þjónustu talmeinafræðinga. Á aðalfundi Félags talkennara og talmeinafræðinga sem nýlega var haldinn í Reykjanesbæ voru eftirfarandi ályktanir samþykktar með öllum greiddum atkvæðum.
Ályktanirnar varða almannahagsmuni. Önnur ályktunin er stuðningsyfirlýsing við þingsályktunartillögu sem Þuriður Backman hyggst leggja fyrir Alþingi. Málið snýst um að bæta hljóðvist í skólum. Slæm hljóðvist torveldar börnum að tileinka sér nám, hefur skæm áhrif á líðan nemenda og kennara og er óðgnun við raddheildu kennara. Aðalfundur FTT, Félags talkennara og talmeinafræðinga, haldinn 7. mars í Reykjanesbæ, skorar á Alþingi að flýta samþykkt og afgreiðslu þingsályktunartillögu um hljóðvist barna í grunnskólum og leikskólum. Flutningsmaður tillögunnar er Þúríður Backman þingmaður. Hin ályktunin hvetur Sjúkratryggingar Íslands til samninga við talmeinafræðinga og að heilbrigðisráðherra leiðrétti gjaldskrá reglugerðar um styrki Sjúkratrygginga Íslands vegna þjónustu sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga sem eru án samninga við heilbrigðisráðherra. Aðalfundur Félags talkennara og talmeinafræðinga, haldinn 7. mars í Reykjanesbæ lýsir þungum áhyggjum vegna stöðu barna með mál- og talmein. Börnum er mismunað á grundvelli efnahags foreldra og mismunandi fatlana. Greiðsluþátttaka/styrkur Sjúkratrygginga Íslands tekur mið af hvort talmeinafræðingar starfa innan eða utan rammasamnings stofnunarinnar. Stærsti hluti sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga starfar utan rammasamnings þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að ná viðunandi samningum. |