Vegna deilu TR og talmeinafræðinga PDF Print

Í tilefni af deilu Tryggingastofnunar ríkisins og talmeinafræðinga

Þann 11. apríl sl. birtist frétt í Fréttablaðinu um þann aukna kostnað og fyrirhöfn sem einstaklingar sem þurfa á talþjálfun að halda þurfa nú að taka á sig eftir að talmeinafræðingar sögðu sig frá samningum Tryggingastofnunar ríkisins  (TR) og Félags talkennara og talmeinafræðinga  (FTT).  Þar segir fulltrúi TR sökina liggja hjá talmeinafræðingum sem sögðu sig frá samningum „vegna eðlilegra athugasemda stofnunarinnar“. Finn ég mig knúna til að leiðrétta þessa rangfærslu.

TR getur ekki firrt sig ábyrgð í þessu máli. Eftir að talmeinafræðingar sögðu sig frá samningum hefur TR beitt fyrir sig regluverki sem hamlar endurgreiðslum vegna kostnaðar við talþjálfun. Heilbrigðisráðuneytið útbjó reglugerð um styrki Tryggingastofnunar ríkisins vegna þjónustu sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga utan samnings. Þar voru gerðar breytingar á læknabeiðnum og þeim upplýsingum sem þurfa að liggja fyrir til að skjólstæðingar okkar fái endurgreiðslu vegna þjálfunarkostnaðar. TR hefur staðið sig mjög illa í að kynna læknum þessar breytingar. Þetta veldur því að skjólstæðingar fá ekki samþykki fyrir endurgreiðslu. Ennfremur er styrkur vegna talþjálfunar skv. ofangreindri reglugerð 33-38% lægri en sú endurgreiðsla sem greidd er skv. samningi TR og FTT, um leið og gerð er krafa um lengri meðferðartíma.

Samskipti TR og talmeinafræðinga hafa verið stirð um nokkurt skeið en upp úr sauð þegar TR sendi á sex talmeinafræðinga þriggja manna eftirlitssveit í skjóli nafnlausra ábendinga.  Eftirlit TR gekk fram með slíku offorsi og sleggjudómum að gróflega var brotið á meðalhófsreglu, jafnræðisreglu og andmælarétti. Eftirlit þetta stóð yfir í rúma 6 mánuði og krafðist umtalsverðs lögfræðikostnaðar af okkar hálfu til að hrinda frá þeim rangfærslum sem lagðar voru fram af Eftirliti TR. Eftir þessa miklu vinnu og kostnað sem TR hefur þurft að leggja í þetta 6 mánaða umsátur sat hins vegar eftir lítill afrakstur. Ein aum athugasemd sem varðaði vinnulag og auðveldlega hefði verið hægt að koma til skila með einu símtali.

Í þessu máli öllu hefur komið skýrt fram að TR viðurkennir ekki nauðsynlegan umsýslutíma talmeinafræðinga. Sýnir það glöggt hversu lítinn skilning stofnunin hefur á störfum talmeinafræðinga og einstaklingsmiðaðrar talþjálfunar. Fyrir utan undirbúning og frágang hvers meðferðartíma er markmiðssetning, skýrslugerð og samskipti við aðstandendur og aðra sem koma að málum skjólstæðingsins mikilvægur hluti starfsins. Auk þess hafa flóknar og síbreytilegar reglur TR kostað okkur sífellt lengri tíma í skrifræði.

Ég hef sagt mig frá samningi TR og FTT og tel hagsmuni mína og stéttarinnar betur borgið utan samnings. Meginástæður þess eru þrjár:

1)      TR hefur ekki viljað taka formlega ábyrgð á ranglátri meðferð Eftirlits TR gagnvart talmeinafræðingum og hefur ekki fallist á að kynna okkur þær verklagsreglur sem eiga við um Eftirlit TR. Því er óljóst hvort við getum aftur átt von á slíkum yfirgangi.

2)      Túlkun TR á samningi TR og FTT hamlar faglegri vitund talmeinafræðinga þar sem ráðrúm til nauðsynlegs umsýslutíma er of lítið.

3)      Gjaldskrá TR fyrir meðferð talmeinafræðinga er alltof lág en mjög erfitt hefur reynst fyrir samninganefnd FTT að fá hana leiðrétta. Fyrir nokkrum mánuðum gerði TR samning við sálfræðinga, stétt með sambærilegt menntunarstig. Sá samningur kveður á um 64% hærra mínútugjald fyrir meðferðartíma sálfræðings en meðferðartíma talmeinafræðings (133 kr. á mín á móti 81 kr. á mín). Gerðar eru kröfur um reynslu og endurmenntun sálfræðinga en það getur þó ekki skýrt allan þennan mun. Tel ég gjaldskrá samnings TR við FTT móðgun við sérfræðimenntun mína og þetta misræmi í gjaldskrá milli stétta vanvirðingu við fagið mitt.

Ljóst er að trúnaðarbrestur er komin upp á milli TR og talmeinafræðinga. Ég sem sjálfstætt starfandi talmeinafræðingur starfa af fyllstu heilindum fyrir mína skjólstæðinga og vinn ötullega í þeirra þágu. Ég get þó ekki fórnað sjálfri mér og mínu fagi með því að samþykkja þau viðhorf og vinnubrögð sem TR hefur sýnt í þessu máli. Nú er í vændum ný innkaupastofnun heilbrigðisþjónustu sem mun taka yfir samninga við heilbrigðisstéttir. Það er von mín að sú stofnun beri með sér ný og betri viðhorf og vinnubrögð, til hagsbóta fyrir þá sem þurfa á talþjálfun að halda.  

Höfundur er sjálfstætt starfandi talmeinafræðingur 

 

 
Joomla Templates by Joomlashack