|
Að gefnu tilefni gerir Stjórn Félags talkennara og talmeinafræðinga athugasemd við orð Guðbjargar Guðmundsdóttur verkefnisstjóra kynningarmála hjá Tryggingastofnun ríkisins sem höfð eru eftir henni í Fréttablaðinu föstudaginn 11. apríl 2008 Eftir Guðbjörgu er þetta haft: “Tryggingastofnun gerði athugasemd við vinnubrögð talmeinafræðinga og töldu að samningsbrot hefði átt sér stað, en eftir þær athugasemdir sagði stór hluti talmeinafræðinga sig frá samningi.” og síðar segir “Ástæðurnar fyrir því liggi þó ekki hjá Tryggingastofnun heldur hjá talmeinafræðingum sem sögðu sig frá samningum vegna eðlilegra athugasemda stofnunarinnar.” (Fréttablaðið, 11.04.2008) Sjálfstætt starfandi talmeinafræðingar hafa engan áhuga á að dvelja við það sem er búið og gert. Það kemur ekki á óvart að málsaðilar líti misjöfnum augum á orsök ástandsins sem nú bitnar á sjúkratryggðum sem þarfnast meðferðar vegna mál- og talörðugleika sinna. Það má þó öllum vera ljóst að algjör trúnaðarbrestur hefur orðið milli TR og sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga.
Ástæða er til að benda Guðbjörgu Guðmundsdóttur á að athugasemdir TR fólust í alvarlegum og rakalausum ásökunum og að vegið var að starfsheiðri og æru þeirra sem fyrir urðu. Vörn talmeinafræðinganna tók rúmt hálft ár en að lokum dróg TR kærur sínar til baka eins og ljóst mátti vera strax í upphafi að gera þyrfti. Talmeinafræðingar hafa aldrei dregið í efa rétt TR til eftirlits með að samningar væru haldnir en við óvandaða stjórnsýslu er ekki hægt að búa. Talmeinafræðingar gera kröfu um að TR virði samninga sem þeir hafa gert og fari fram af hófsemd og fylgi reglum um vandaða stjórnsýslu. Talmeinafræðingar vinna víða og gera samninga við marga verkkaupa. Samningar byggja á gagnkvæmu trausti og virðingu. Því hefur ekki verið til að dreifa milli TR og talmeinafræðinga síðustu misserin. Það er einnig rétt að minna á að talmeinafræðingar sömdu ekki reglugerð þá sem nú er í gildi og bera enga ábyrgð á hversu andsnúin hún er þeim sem þarfnast meðferðar vegna mál- og talmeina. Athygli hefur vakið þegar reglugerðin er borin saman við reglugerðir sem eru í gildi vegna þjónustu hjartalækna, bæklunarlækna og tannlækna hve málhömluðum er gert erfitt fyrir. Félag talkennara og talmeinafræðinga er tilbúið að gera nýjan samning við TR en því aðeins að ljóst sé að hægt verði að endurreisa það traust sem áður var milli aðila. Við skorum á TR að sýna í verki að þeim sé það einhvers virði að samningar náist. Fyrir hönd stjórnar FTT, Kristinn Hilmarsson, formaður |