Starfið PDF Print

Talkennarar og talmeinafræðingar starfa í leikskólum, skólum, á sjúkrahúsum, endurhæfingarstöðvum, greiningarstöðvum, hjá sveitarfélögum og á eigin stofum. Talkennarar og talmeinafræðingar vinna við greiningu á mál- og talmeinum ásamt meðferð og má þar nefna frávik í málþroska og framburði, stam, raddveilur, tjáningarerfiðleika eftir heilablóðfall og kyngingartregðu. Einnig meta þeir þörf fyrir og veita þjálfun í óhefðbundnum tjáskiptaleiðum. Ráðgjöf er mikilvægur þáttur í starfi talkennara og talmeinafræðinga. Talmeinafræðingar vinna í nánu samstarfi við kennara, lækna og aðrar uppeldis-og heilbrigðisstéttir. Í byrjun meðferðar þarf yfirleitt tilvísun frá lækni. Skjólstæðingar eru á öllum aldri, allt frá ungabörnum til aldraðra.

Þær aðferðir sem talkennarar og talmeinafræðingar beita eru mismunandi og byggjast á nákvæmri greiningu. Markmið meðferðar getur verið að:

  • auka málskilning
  • auka máltjáningu
  • stuðla að bættum boðskiptum
  • styrkja talfæri
  • leiðrétta framburð
  • lagfæra tunguþrýsting
  • auka málfærni
  • draga úr raddvandamálum
  • draga úr stami
  • auka málvitund
  • draga úr þvoglumæli
  • draga úr lestrarörðugleikum
  • styrkja ritmál
  • styrkja hljóðkerfisvitund
  • vinna með óhefðbundnar tjáskiptaleiðir

Kostnaður meðferðar er mismunandi eftir því hvar þjónustan er veitt. Talkennsla í leik- og grunnskólum er greidd af viðkomandi sveitarfélagi. Þjónusta sem veitt er innan stofnana eins og sjúkrahúsa og hjúkrunarheimila er skjólstæðingnum yfirleitt að kostnaðarlausu. Tryggingastofnun ríkisins tekur þátt í kostnaði fyrir þá sem falla undir viðmið þeirra og þurfa að sækja þjónustu til sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga.

Félag talkennara og talmeinafræðinga hefur gert samning við Tryggingastofnun ríkisins þar sem ríkið greiðir meðferð hjá talmeinafræðingi að nokkru eða öllu leyti.

Talmeinafræðingar hafa löggildingu og er þeim einum heimilt að starfa sjálfstætt sem hafa fengið til þess leyfi frá Heilbrigðisráðuneytinu.

Talkennslu og talmeinafræði er aðeins hægt að læra erlendis. Eftir B.Ed eða B.A. gráðu er hægt að nema talkennslu/talmeinafærði erlendis og tekur námið 2-3 ár. Talmeinafræði er yfirleitt á meistarastigi. Námið er lánshæft hjá LÍN.

Talkennarar og talmeinafræðingar sérhæfa sig á ýmsum sviðum innan talmeinafræðinnar. Má þar nefna talþjálfun ungra barna, mismunandi þroskafrávik, sértækar lesraskanir, raddþjálfun, málstol, kyngingaörðugleikar og stam.

Talmeinafræði er fag í stöðugri þróun sem fylgir framförum og nýjungum innan heilbrigðis- og menntakerfisins. Talkennarar og talmeinafræðingar leggja sífellt meiri áherslu á endurmenntun og rannsóknir í störfum sínum.

Mál og tal eru mikilvægur þáttur í lífi hvers manns. Við þurfum innra mál til þess að skipuleggja hugsanir okkar. Með tali komum við hugsunum okkar á framfæri og notum til þess talfæri, rödd og öndun. Þeir sem ekki geta notað talmál til tjáskipta þurfa að nota óhefðbundnar tjáskiptaleiðir til þess að gera sig skiljanlega. Erfiðleikar í sambandi við mál, tal og boðskipti geta komið fram hjá fólki á öllum aldri.

 
Joomla Templates by Joomlashack