Lög félagsins PDF Print

1. gr.

Heiti félagsins

Félagið heitir Félag talkennara og talmeinafræðinga. Skammstöfun: F.T.T.

 

2. gr.

Markmið félagsins

Félagið skal sameina alla talkennara og talmeinafræðinga sem rétt hafa til inngöngu í félagið, sbr. 3. gr., fylgja eftir hagsmunum félagsmanna og efla samtök og samheldni þeirra á milli.

Félagið skal leita eftir samvinnu við erlend félög sambærilegra starfshópa.

Félagið skal standa fyrir fræðslu og kynningarstafsemi meðal félagsmanna.

Félagið hefur ekki afskipti af stjórnmálum.

 

3. gr.

Meðlimir félagsins

Rétt til inngöngu í félagið hafa allir talkennarar og talmeinafræðingar sem félagið viðurkennir sem slíka.

Umsókn um inntöku í félagið skal senda stjórn þess og fylgja umsókninni prófskírteini /réttindaviðurkenning frá skóla með viðurkenndri námsbraut í talkennslu/talmeinafræði.

Þeir talkennarar og talmeinafræðingar sem uppfylla inntökuskilyrði og eru starfandi hér á landi geta gerst félagar í F.T.T.

Nemar í talkennslu, talmeinafræðum og aðrir áhugasamir geta sótt um inngöngu í félagið. Þeir hafa ekki atkvæðisrétt en umræðu- og tillögurétt.

Heiðursfélagar verða kosnir með einróma samþykki stjórnar F.T.T. og skal kjör heiðursfélaga tilkynnt á næst aðalfundi.

Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og send stjórn félagsins fyrir áramót.

 

4. gr.

Fjármál félagsins.

Árgjald er ákveðið á aðalfundi og skal innheimt í janúar.

Hafi félagsmaður ekki greitt árgjald sitt fyrir aðalfund, þrátt fyrir ítrekun, fellur hann af félagaskrá. Eftir 65 ára aldur greiða starfandi félagsmenn ½ árgjald, nema þeir óski annars. Þeir halda kosningarétti og öðrum réttindum en eru ekki áskrifendur að erlendum tímaritum.

Þeir félagsmenn sem náð hafa eftirlaunaaldri greiða ekkert félagsgjald nema þeir óski. Þeir halda kosningarétti og öðrum réttindum en eru ekki áskrifendur að erlendum tímaritum.

Félagar F.T.T. sem dvelja erlendis ½ ár eða lengur, greiða ½ félagsgjald ef þeir óska eftir því.

Nemar í talkennslu og talmeinafræði og aðrir áhugasamir borgi ½ félagsgjald. Þeir hafa ekki kosningarétt og eru ekki áskrifendur að erlendum tímaritum.

Tíu prósent af árgjaldi fellur í ferðasjóð sem félagar geta sótt um styrk úr til að komast á stjórnar- og félagsfundi sem haldnir eru utan þeirra búsvæðis.

Reikningsár félagsins er almanaksárið. Reikningar skulu vera komnir í hendur skoðunarmanns reikninga 7 dögum fyrir aðalfund.

 

5. gr.

Stjórn félagsins.

Stjórnina skipa 5 menn, formaður, ritari, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur. Jafnframt skulu kosnir tveir skoðunarmenn reikninga félagsins.

Formann skal kjósa sérstaklega til eins árs í senn. Hann sitji lengst í 6 ár samfleytt. Ritari, gjaldkeri og meðstjórnendur eru kosnir til tveggja ára. Skoðunarmenn reikninga eru kosnir til eins árs í senn. Stjórnin er kosin á aðalfundi.

 

6. gr.

Fundir félagsins.

Félagsstjórn skal sjá um að minnst 3 fundir séu haldnir á starfsárinu. Einnig skal boða fund í félaginu ef minnst 5 félagsmanna óska þess skriflega og tilgreina fundarefni. Almenna fundi skal boða með minnst tveggja vikna fyrirvara miðað við póststimpil og eru þeir lögmætir ef löglega er til þeirra boðað. Aðalfund F.T.T. skal halda sem næst 6. mars ár hver. Boða skal til hans með tveggja vikna fyrirvara. Hann telst löglegur sé löglega til hans boðað. Aukafund má halda ef stjórnin álítur þess þörf eða ef ¼ atkvæðabærra manna krefst þess. Um aukaaðalfund gilda sömu ákvæði og um að alfund. Tillögur um lagabreytingar skulu vera komnar í hendur stjórnar ekki síðar en 3 vikum fyrir aðalfund og skal þeirra getir í fundarboði.

 

7. gr.

Störf aðalfundar.

Fundarsetning.

Kosning fundarstjóra og fundarritara.

Formaður félagsins flytur skýrslu stjórnar fyrir liðið starfsár.

Gjaldkeri félagsins leggur fram og skýrir endurskoðaða reikninga félagsins.

Ritnefnd greinir frá útgáfu Talfræðingsins.

Aðrar nefndir skýra frá starfsemi sinni.

Lagabreytingar ef fyrir hendi eru.

Stjórnarkosning skv. 5. gr. Óski formaður, ritari eða gjaldkeri eftir lausn frá störfum á miðju kjörtímabili, tekur annar meðstjórnenda sæti hans fram að næst aðalfundi.

Kosið í ritnefnd.

Kosið í samninga- og réttindanefnd.

Kosið í fræðslunefnd.

Tekin ákvörðun um árgjald félagsmanna.

Önnur mál.

Fundarslit.

 

8. gr.

Atkvæðagreiðsla.

Lagabreytingar þurf að samþykkjast með ¾ hluta atkvæða, aðrar tillögur hljóta samþykkt með einföldum meirihluta atkvæða. allar kosningar séu bundnar og fari fram leynilega séu fleiri en einn í kjöri og gildir einfaldur meirihluti. Séu atkvæði jöfn skal kosið að nýju í bundinni kosningu og fáist þá ekki úrslit skal hlutkesti ráða.

 

9. gr.

Stjórnarfundir og ákvarðanir.

Stjórnarfundi boðar formaður þegar hann eða meirihluti stjórnarinnar telur nauðsynlegt. Ákvarðanir stjórnarinnar öðlast gildi með einföldum meirihluta, þó að undanteknum þeim málum sem heyra undir 3. gr., 4. lið, en þá verður öll stjórnin að vera mætt á fundi. Annars eru stjórnarfundir löglegir ef minnst 3 stjórnarmeðlimir eru mættir.

 

10. gr.

Endurmenntun

Aðalfundur skipar tvo félagsmenn í fræðslunefnd. Þeir eru skipaðir til tveggja ára í senn. Fræðslunefnd sér um að halda 2 námskeið árlega sem gefa stig fyrir endurmenntun.

 

11. gr.

Stjórnin fylgist með launamálum félagsmanna og skal styðja félaga eftir megni í deilumálum sem upp kunna að koma við launagreiðslur.

 

12. gr.

Félaginu er stjórnað eftir lögum þessum og ákvörðunum aðalfundar.

 

13. gr.

Brot á lögum þessum geta varðað brottvísun úr félaginu.

Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi F.T.T. í september 1981. Breytingar hafa verið gerðar á aðalfundi árin 1982, 1985, 1986, 1989, 1993, 1998, 1999, 2004, 2007 og 2010.

 

 

 

 
Joomla Templates by Joomlashack