Rannsóknarstofa um þroska, mál og læsi

Rannsóknarstofa um þroska, mál og læsi vinnur að úttekt á stöðu barna og ungmenna með tal- og málþroskafrávik að beiðni Mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Rannsóknin er gerð að frumkvæði Menntamálanefndar Alþingis

Útbúinn hefur verið rafrænn spurningalisti sem ætlað að afla nauðsynlegra upplýsinga um stöðu íslenskra barna og ungmenna með málþroskafrávik og þau úrræði og þjónustu sem þeim bjóðast. Spurt er um þjónustu, ábyrgð og skiptingu fjármagns í hjá ríki annars vegar og sveitarfélögum hins vegar. Þess er vænst að niðurstöðurnar nýtist í stefnumótun um hvernig best verði komið til móts við þarfir þessa hóps í bráð og lengd.

Á Íslandi er áætlað að um 200-500 börn í hverjum árgangi þurfi aðstoð vegna tal-/og eða málþroskafrávika. Afleiðingar þessara erfiðleika geta verið mjög alvarlegar fyrir eintaklinginn og þjóðfélagið. Vandinn lýsir sér í því að á leikskólaaldri lærir barnið ekki orðaforða, málfræði og setningafræði og myndun og notkun hljóða á sama hraða og jafnaldrar. Eins lærir það ekki á sama hátt og jafnaldrar, hvernig á að nota málið sér til framdráttar og til samkipta. Þegar barnið er komið á grunnskólaaldru geta málþroskaerfiðleikar valdið erfiðleikum við að læra lestur og textagerð, sem síðar getur leitt til námserfiðleika, félagslegrar einangrunar og erfiðleika með hegðun. Á unglingsárum getur tal- og/eða málhömlun, valdið erfiðleikum með að ljóka skólanámi, fá vinnu og jafnvel að eingast maka.

Read more...
 
Nýr rammasamningur SÍ

Nýr rammasamningur Sjúkratrygginga Íslands fyrir sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga tekur gildi 1. september 2011. Samningurinn er lokatilboð SÍ eftir langar og strangar viðræður fulltrúa talmeinafræðinga sem hafa staðið utan samnings og formanns við

Read more...
 
Stéttarfélagsmál

Nú liggja fyrir niðurstöður könnunar-innar sem send var tölvupósti í maí sl., um viðhorf félagsmanna FTT til stofnunar stéttarfélags. 22 félagsmenn sögðu já við stofnun stéttarfélags, 5 sögðu nei. 28 svöruðu ekki könnuninni.

Þeir félagsmenn sem sögðu lögðu meðal annars áherslu á mikilvægi samstöðu

Read more...
 
Afmælishátíð FTT 10. sept. 2011

Félag talkennara og talmeinafræðinga fagnar 30 ára afmæli á Grand hótel laugardaginn 10. september 2011. Í tilefni af afmælinu verður haldin vegleg ráðstefna sem lýkur með hátíðarkvöldverði, ræðum og skemmtiatriðum.

Read more...
 
Evrópudagur talþjálfunar!

6. mars er Evrópudagur talþjálfunar

Þema dagsins er "Hearing challenges in að noisy world."

 
Aðalfundur FTT 2011

Aðalfundur félagsins verður haldinn á Greifanum á Akureyri 19. mars 2011 kl. 10

Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.

Um kvöldið verður farið út að borða.

Eru ekki allir búnir að verða sér úti um flug og gisitngu?

 
Joomla Templates by Joomlashack